
Seeds hópurinn í Vitanum í kvöld
Nú er umhverfisátak í gangi í Sandgerði og verður fram að Sandgerðisdögum. Settir hafa verið upp gámar við áhaldahús bæjarfélagsins og hvetur bæjarráð húsráðendur og fyrirtæki bæjarfélagsins að taka þátt í átakinu.
Hópur á vegum Seeds er nú staddur í Sandgerði og mun taka þátt í átakinu næstu daga.
Ljósmyndari hitti hópinn í kvöld á veitingastaðnum Vitanum. Ýmsir aðilar koma að styrkveitingu: Vitinn býður öllum í mat, Hópferðir Sævars Baldurssonar sjá um að ferja hópinn á milli staða og Bláa Lónið býður frítt til sín. Auk þess styrkir Sandgerðisbær Seeds-hópinn.

Gámarnir við áhaldahús bæjarfélagsins
Myndir: 245.is | lifid@245.is